
Íslenski málsýnabankinn kynntur á RaPID-6
11. maí 2026
Iris Edda Nowenstein var á meðal fyrirlesara á RaPID-6 vinnustofunni innan LREC-ráðstefnunnar sem fór fram í maí. Þar kynnti hún bæði Íslenska málsýnabankann og veflausnina ÖLDU í góðum félagsskap annarra sérfræðinga um heilbrigðismáltækni. Hún var líka hluti af teymi sem kynnti veggspjald á aðalráðstefnunni. Í ráðstefnuriti LREC má finna ritrýndu greinarnar á bakvið kynningarnar.