Íslenski málsýnabankinn safnar upptökum af íslensku tali frá fjölbreyttum hópi fólks til að efla rannsóknir og þróun á heilbrigðismáltækni fyrir íslensku.
Tilgangur verkefnisins er að tryggja að íslenskumælandi fólk fái aðgang að sömu heilbrigðismáltækni og þróuð er fyrir stærri tungumál.
Slík máltækni er til dæmis notuð til að greina og fylgjast með einkennum í tali og máli fólks með taugahrörnunarsjúkdóma eða barna með tal- og málraskanir. Einnig nýtist hún í þróun samskiptalausna, til dæmis þannig að símar og tölvur skilji betur fólk með óskýrt tal.
Verkefnið er á vegum Háskóla Íslands og því stýrir Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni og talmeinafræðingur á Landspítala. Uppbygging Íslenska málsýnabankans er styrkt af Markáætlun í tungu og tækni og máltækniáætlun stjórnvalda.

Íslenski málsýnabankinn opnar 7. janúar 2027
Fáðu áminningu og upplýsingar þegar opnar fyrir þátttöku